Bókin Heilsudrykkir er komin

Við tilkynnum með stolti að bókin Heilsudrykkir er komin út.Höfundur hennar, Auður Ingibjörg Konráðsdóttir hefur getið sér gott orð sem heilsukokkur og hefur í nokkur ár haldið námskeið í hollustu matargerð og lífsstíl.

Í bókinni er fjöldi uppskrifta að einföldum, hollum og gómsætum drykkjum. Bókin er fallega myndskreytt, einstaklega vönduð, glæsileg og eiguleg bók.

Bókin fæst í öllum helstu bókabúðum og matvörubúðum.